HeimAUD / BGN • Gjaldmiðill
add
AUD / BGN
Við síðustu lokun
1,22
Viðskiptafréttir
Um Ástralskur dalur
Ástralskur dalur hefur verið gjaldmiðill Ástralíu frá því árið 1966. Hann gildir þar að auki á eyríkjunum Kíribatí, Nárú og Túvalú. Hann er vanalega táknaður með merkinu $. Stundum eru þó notuð A$, $A, AU$, $AU eða AUD til aðgreiningar frá öðrum gjaldmiðlum kölluðum dalir. Einn ástralskur dalur skiptist í 100 sent, táknað með c.
Allar eldri ástralskar myntir og peningaseðlar, meðal annars pund, skildingar og pens, gilda enn sem gjaldmiðlar í Ástralíu. Ástralskur dalur notar bæði seðla og myntir. Seðlarnir eru allir úr sérstakri gerð af plasti $5, $10, $20, $50 og $100 að virði. Myntirnar gilda 1c, 2c, 5c, 10c, 20c, 50c, $1 og $2 og eru slegnar af Konunglegu áströlsku myntsláttunni. Það er Seðlabanki Ástralíu sem gefur þá út. WikipediaUm Búlgarskt lef
Búlgarskt lef er gjaldmiðill Búlgaríu. Eitt lef skiptist í 100 stotinka. Orðið lef á uppruna sinn í gömlu búlgarsku orði yfir „ljón“. Lefið er tengt við evruna á genginu 1 EUR = 1,95583 BGN.
Búlgaría er skuldbundin því að taka upp evruna á einhverjum tímapunkti, samkvæmt skilyrðum aðildar að Evrópusambandinu. Búlgaría varð aðildaríki Evrópusambandsins árið 2007 og þá var gert ráð fyrir að landið yrði meðlimur evrusvæðisins fyrir árið 2015. Síðar var horfið frá þeim hugmyndum og ákveðið að viðhalda lefinu. Wikipedia