HeimAUD / TWD • Gjaldmiðill
add
AUD / TWD
Við síðustu lokun
21,02
Viðskiptafréttir
Um Ástralskur dalur
Ástralskur dalur hefur verið gjaldmiðill Ástralíu frá því árið 1966. Hann gildir þar að auki á eyríkjunum Kíribatí, Nárú og Túvalú. Hann er vanalega táknaður með merkinu $. Stundum eru þó notuð A$, $A, AU$, $AU eða AUD til aðgreiningar frá öðrum gjaldmiðlum kölluðum dalir. Einn ástralskur dalur skiptist í 100 sent, táknað með c.
Allar eldri ástralskar myntir og peningaseðlar, meðal annars pund, skildingar og pens, gilda enn sem gjaldmiðlar í Ástralíu. Ástralskur dalur notar bæði seðla og myntir. Seðlarnir eru allir úr sérstakri gerð af plasti $5, $10, $20, $50 og $100 að virði. Myntirnar gilda 1c, 2c, 5c, 10c, 20c, 50c, $1 og $2 og eru slegnar af Konunglegu áströlsku myntsláttunni. Það er Seðlabanki Ástralíu sem gefur þá út. WikipediaUm Taívanskur dalur
Nýr Taívandalur er gjaldmiðill Lýðveldisins Kína frá 1949 þegar hann tók við af gömlum Taívandal. Hann var fyrst gefinn út af Taívanbanka en hefur verið gefinn út af Seðlabanka Lýðveldisins Kína frá 2000. Hann hefur skammstöfunina TWD og gjaldmiðlatáknið NT$. Hálfur dalur, einn, fimm, tíu, tuttugu og fimmtíu dalir eru gefnir út sem mynt en seðlar frá NT$ 100 til NT$ 2000. Gengið miðað við Bandaríkjadal hefur verið á bilinu frá 10 til yfir 40 Taívandalir á móti einum Bandaríkjadal. Árið 2013 var gengið um 30. Wikipedia