HeimGBP / AMD • Gjaldmiðill
add
GBP / AMD
Við síðustu lokun
499,98
Viðskiptafréttir
Um Sterlingspund
Breskt pund eða sterlingspund er gjaldmiðill á Bretlandi. Eitt pund skiptist í 100 penní. Árið 1971 voru eftirtaldar upphæðir gildur gjaldmiðill á Bretlandi:
Seðlar: £5, £10, £20, £50
Mynt: 1p, 2p, 5p, 10p, 25p, 50p, £1, £2
Algengasta táknið fyrir breskt pund er ₤ eða £, og p fyrir penníið.
Upphaflega jafngilti verðmæti þess einu pundi af 92,5% hreinu silfri með 7,5% eir, sem kallast sterling silfur. Af því er dregið nafnið sterlingspund.
Fyrir 1971 var einu pundi skipt í 20 skildinga, sem hver um sig jafngilti 12 penníum. Þannig var eitt pund jafnt 240 penníum. Frá og með 1971 voru skildingar lagðir niður og verðgildi á „nýja penníinu“ varð 2,4 sinnum meira en áður hafði verið.
Pundið er gefið út af Seðlabanka Englands, sem hefur einkaleyfi til þess á Englandi og í Wales, eða tveimur af fjórum löndum sem mynda Bretland, en af sögulegum ástæðum hafa fjórir bankar í Skotlandi og þrír á Norður-Írlandi leyfi til að gefa út sín eigin pund, þar á meðal gefur t.d. Danske Bank út bresk pund, merkt "Danske" á Norður-Írlandi, eftir kaup á Northern Bank.
Pundið varð eitt af gjaldmiðlum Evrópusambandsins en við útgöngu breta hætti pundið að vera það. WikipediaUm Armenskt dramm
Armenskt dram er gjaldmiðill ríkisins Armeníu frá 1993 og leysti af hólmi rúbluna, sem var gjaldmiðill á Sovéttímanum. Í einu drami voru 100 luma en vegna óðaverðbólgu er sú eining ekki notuð lengur. Orðið dram þýðir peningar og er skylt gríska myntheitinu drakma og arabíska heitinu dírham. Wikipedia