HeimGBP / AUD • Gjaldmiðill
add
GBP / AUD
Við síðustu lokun
1,95
Í fréttum
Um Sterlingspund
Breskt pund eða sterlingspund er gjaldmiðill á Bretlandi. Eitt pund skiptist í 100 penní. Árið 1971 voru eftirtaldar upphæðir gildur gjaldmiðill á Bretlandi:
Seðlar: £5, £10, £20, £50
Mynt: 1p, 2p, 5p, 10p, 25p, 50p, £1, £2
Algengasta táknið fyrir breskt pund er ₤ eða £, og p fyrir penníið.
Upphaflega jafngilti verðmæti þess einu pundi af 92,5% hreinu silfri með 7,5% eir, sem kallast sterling silfur. Af því er dregið nafnið sterlingspund.
Fyrir 1971 var einu pundi skipt í 20 skildinga, sem hver um sig jafngilti 12 penníum. Þannig var eitt pund jafnt 240 penníum. Frá og með 1971 voru skildingar lagðir niður og verðgildi á „nýja penníinu“ varð 2,4 sinnum meira en áður hafði verið.
Pundið er gefið út af Seðlabanka Englands, sem hefur einkaleyfi til þess á Englandi og í Wales, eða tveimur af fjórum löndum sem mynda Bretland, en af sögulegum ástæðum hafa fjórir bankar í Skotlandi og þrír á Norður-Írlandi leyfi til að gefa út sín eigin pund, þar á meðal gefur t.d. Danske Bank út bresk pund, merkt "Danske" á Norður-Írlandi, eftir kaup á Northern Bank.
Pundið varð eitt af gjaldmiðlum Evrópusambandsins en við útgöngu breta hætti pundið að vera það. WikipediaUm Ástralskur dalur
Ástralskur dalur hefur verið gjaldmiðill Ástralíu frá því árið 1966. Hann gildir þar að auki á eyríkjunum Kíribatí, Nárú og Túvalú. Hann er vanalega táknaður með merkinu $. Stundum eru þó notuð A$, $A, AU$, $AU eða AUD til aðgreiningar frá öðrum gjaldmiðlum kölluðum dalir. Einn ástralskur dalur skiptist í 100 sent, táknað með c.
Allar eldri ástralskar myntir og peningaseðlar, meðal annars pund, skildingar og pens, gilda enn sem gjaldmiðlar í Ástralíu. Ástralskur dalur notar bæði seðla og myntir. Seðlarnir eru allir úr sérstakri gerð af plasti $5, $10, $20, $50 og $100 að virði. Myntirnar gilda 1c, 2c, 5c, 10c, 20c, 50c, $1 og $2 og eru slegnar af Konunglegu áströlsku myntsláttunni. Það er Seðlabanki Ástralíu sem gefur þá út. Wikipedia