HeimHKD / BGN • Gjaldmiðill
add
HKD / BGN
Við síðustu lokun
0,23
Viðskiptafréttir
Um Hong Kong-dalur
Hong Kong-dalur er opinber gjaldmiðill í Hong Kong. Einn dalur skiptist í 100 sent. Gjaldeyrisráð Hong Kong hefur umsjón með gjaldmiðlinum og er í reynd seðlabanki fyrir Hong Kong.
Bankar sem hafa leyfi gjaldeyrisráðsins mega gefa út sína eigin seðla til almennra nota í Hong Kong. Bankarnir þrír, HSBC, Bank of China og Standard Chartered Hong Kong gefa út seðla með eigin hönnun með upphæðunum HK$20, HK$50, HK$100, HK$500 og HK$1000 þar sem seðlar með sömu upphæð líkjast hver öðrum. 10 dala seðlar og mynt er aðeins gefin út af stjórnvöldum Hong Kong.
Í apríl 2016 var Hong Kong-dalur 13. mest notaði gjaldmiðill heims í gjaldeyrisviðskiptum. Dalurinn er líka notaður í Maká samhliða Makápatökum. Lengst af hefur Hong Kong-dalur verið bundinn silfurfæti eða sterlingspundi. Frá 1983 hefur dalurinn verið bundinn við Bandaríkjadal með vikmörkum. WikipediaUm Búlgarskt lef
Búlgarskt lef er gjaldmiðill Búlgaríu. Eitt lef skiptist í 100 stotinka. Orðið lef á uppruna sinn í gömlu búlgarsku orði yfir „ljón“. Lefið er tengt við evruna á genginu 1 EUR = 1,95583 BGN.
Búlgaría er skuldbundin því að taka upp evruna á einhverjum tímapunkti, samkvæmt skilyrðum aðildar að Evrópusambandinu. Búlgaría varð aðildaríki Evrópusambandsins árið 2007 og þá var gert ráð fyrir að landið yrði meðlimur evrusvæðisins fyrir árið 2015. Síðar var horfið frá þeim hugmyndum og ákveðið að viðhalda lefinu. Wikipedia