HeimHKD / IQD • Gjaldmiðill
add
HKD / IQD
Við síðustu lokun
167,80
Viðskiptafréttir
Um Hong Kong-dalur
Hong Kong-dalur er opinber gjaldmiðill í Hong Kong. Einn dalur skiptist í 100 sent. Gjaldeyrisráð Hong Kong hefur umsjón með gjaldmiðlinum og er í reynd seðlabanki fyrir Hong Kong.
Bankar sem hafa leyfi gjaldeyrisráðsins mega gefa út sína eigin seðla til almennra nota í Hong Kong. Bankarnir þrír, HSBC, Bank of China og Standard Chartered Hong Kong gefa út seðla með eigin hönnun með upphæðunum HK$20, HK$50, HK$100, HK$500 og HK$1000 þar sem seðlar með sömu upphæð líkjast hver öðrum. 10 dala seðlar og mynt er aðeins gefin út af stjórnvöldum Hong Kong.
Í apríl 2016 var Hong Kong-dalur 13. mest notaði gjaldmiðill heims í gjaldeyrisviðskiptum. Dalurinn er líka notaður í Maká samhliða Makápatökum. Lengst af hefur Hong Kong-dalur verið bundinn silfurfæti eða sterlingspundi. Frá 1983 hefur dalurinn verið bundinn við Bandaríkjadal með vikmörkum. WikipediaUm Írakskur denari
Dínar er gjaldmiðillinn í Írak. Hann er gefinn út af Seðlabanka Írak og er deilt upp í 1.000 fils, en vegna verðbólgu er honum ekki lengur skipt upp.
Sjálft orðið -dínar er tökuorð úr grísku & latínu og merkir svipað og teneyringur. Þar sem d-ið í tíu harðnaði með germönsku hljóðfærslunni hefst það á -d í öðrum indóevrópskum málum. Almenna orðið fyrir peninga í nútíma spænsku, dinero, og ítölsku, denaro, eru náskyld. Wikipedia