HeimKRW / HKD • Gjaldmiðill
add
KRW / HKD
Við síðustu lokun
0,0056
Viðskiptafréttir
Um Suðurkóreskt vonn
Suðurkóreskt vonn er gjaldmiðill Suður-Kóreu. Eitt vonn skiptist í 100 jeon, en jeon er ekki lengur notað sem gjaldmiðill og kemur einungis fyrir í gengisútreikningum. Kóreubanki í Seúl gefur út vonn.
Heitið vonn er skylt kínverska orðinu júan og japanska orðinu jen. Þau eru öll dregin af tákninu 圓 sem merkir gjaldmiðill eða mynt.
Vonn var gjaldmiðill landsins fyrir 1910 en eftir hernám Japana í Suður-Kóreu var tekið upp kóreskt jen sem var jafngilt japönsku jeni. Eftir skiptingu landsins 1945 var suðurkóreskt vonn notað í suðurhlutanum en norðurkóreskt vonn í norðurhlutanum. WikipediaUm Hong Kong-dalur
Hong Kong-dalur er opinber gjaldmiðill í Hong Kong. Einn dalur skiptist í 100 sent. Gjaldeyrisráð Hong Kong hefur umsjón með gjaldmiðlinum og er í reynd seðlabanki fyrir Hong Kong.
Bankar sem hafa leyfi gjaldeyrisráðsins mega gefa út sína eigin seðla til almennra nota í Hong Kong. Bankarnir þrír, HSBC, Bank of China og Standard Chartered Hong Kong gefa út seðla með eigin hönnun með upphæðunum HK$20, HK$50, HK$100, HK$500 og HK$1000 þar sem seðlar með sömu upphæð líkjast hver öðrum. 10 dala seðlar og mynt er aðeins gefin út af stjórnvöldum Hong Kong.
Í apríl 2016 var Hong Kong-dalur 13. mest notaði gjaldmiðill heims í gjaldeyrisviðskiptum. Dalurinn er líka notaður í Maká samhliða Makápatökum. Lengst af hefur Hong Kong-dalur verið bundinn silfurfæti eða sterlingspundi. Frá 1983 hefur dalurinn verið bundinn við Bandaríkjadal með vikmörkum. Wikipedia